
Ragnhildur Jónasdóttir
Félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og EMDR meðferðaraðili
Ragnhildur sinnir að mestu EMDR meðferð einstaklinga 18 ára og eldri. EMDR meðferð er gagnreynd sálfræðileg meðferð fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir erfiðri reynslu á lífsleiðinni.
Ragnhildur lauk námi í EMDR-meðferð í Bandaríkjunum og hefur síðan dýpkað sérþekkingu sína á sérhæfðum námskeiðum. Þar á meðal eru The art of EMDR hjá Roger Solomon og EMDR Master class í umsjón Gyðu Eyjólfsdóttur sálfræðings.
EMDR meðferð getur m.a. gagnast við:
- Áföllum og áfallastreitu
- Einelti og höfnun
- Erfiðri reynslu úr æsku
- Lágu sjálfsmati og sjálfsgagnrýni
- Sorg og missi
- Trúnaðarbroti í nánum samböndum
Í sínum störfum leggur Ragnhildur áherslu á hlýju, virðingu og traust. Hún trúir því að hver einstaklingur búi yfir styrkleikum sem hægt er að virkja til að takast á við áskoranir lífsins og skapa varanlegar breytingar. Markmið hennar er að mæta fólki á þeirra forsendum og styðja það á vegferðinni til betri líðanar.
Samhliða vinnu sinni á stofu hefur Ragnhildur starfað í geðheilsuteymi undanfarin ár.